Aldey og Þórveig

Traustadætur

14.12.2008 01:48:13 / Þórveig

Villimenn...

Sit hérna uppí rúmi með tölvuna og nammipokann minn í fanginu að horfa með öðru auganu á Pocahontas disney myndina ;) Þegar ég horfi núna á disney barnamyndirnar sem ég horfði alltaf á þegar ég var lítil kemst ég alltaf meira að því hvað þær eru góðar. Alltaf einhver góður boðskapur, eins og t.d. í Pocahontas, sérstaklega textarnir við lögin "Vindsins litadýrð" og "Villimenn"... Mjög flottir textar.. Svo horfði ég um daginn á Prince of Egypt... mjög góð mynd og sérstaklega lagið "When you believe" sem Whitney Houston og Mariah Carey syngja... Sniðugir menn þarna hjá Disney-fyrirtækinu 8)

 eeen.. að öðru. Minn elskulegi hundur, Snari, (sem Bjössi átti) er látinn. Það þurfti að svæfa hann því hann var hættur að geta gengið. Ég fór að gráta eins og við var að búast af öllum held ég. Ég elskaði þennan hund og fékk ekki einu sinni að kveðja. Kom bara heim á fimmtudagskvöldið eftir handboltaæfingu og þá slengdi mamma þessu í mig :cry: Þetta er það sem vegur upp á móti því að ég fái mér hund. Hvað á ég að gera þegar hann deyr?? :!:

Svo ég tali nú aðeins meira um sorglega hluti þá horfði ég á Opruh Winfrey um daginn og það var þáttur um kynferðisofbeldi gagnvart börnum. Og hvað haldiði að sé til?? Jújú, það er til kynningarbók á netinu um hvernig þú getur nauðgað börnum og komist upp með það!!!!!!!:^) Djöfulsins viðbjóður.. það voru skýringar um hvað þú getur t.d. gert með ungabörn, síðan var næsti kafli um börn á aldrinum 2-4 og síðan hækkar aldurinn með hverjum kaflanum... Hvað er að fólki?? Það á bara að taka svona fólk og skjóta það!! Ég vil ekki einu sinni reyna að skilja það og hvað gengur að þeim, bara taka þau og stilla þeim upp við vegg og skjóta!! Samt er ég engin ofbeldismanneskja, ég bara skil ekki hvernig er hægt að gera svona litlum dúllum þetta.. Ég t.d. elska öll börnin á minni deild á leikskólanum.. Þau eru svo einstök og skemmtileg að þau eru bara snilld. :) En í þessum Oprah þætti var líka sagt frá því hvernig einn pabbinn komst upp með að nauðga dóttur sinni og vinkonum hans í fjöldamörg ár án þess að stelpurnar vissu af því. Hann gaf þeim bara svefnlyf og nauðgaði þeim svo hverri á fætur annarri. Þær höfðu ekki grænan grun um að þeim hafði verið nauðgað fyrr en lögreglan kom í heimsókn og sagði þeim það.. Pæliði í þessu!!! 8|:!:8|:!:

Jæja, ég er hætt að tala um ömurlega hluti... nú eru bara nokkrir dagar í jólin, Aldey flytur heim eftir nokkra daga og ég fer í stúdentamyndatöku á föstudaginn inná Akureyri... og vonandi í bíó á Twilight.. langar mjög mikið að sjá hana.. enda hef ég bara heyrt góða hluti um hana :d Leiksýningar eru í fullum gangi núna, jaa, kannski ekki fullum gangi núna þar sem síðasta sýning fyrir jól er á morgun... :lol: en þær eru búnar að vera í fullum gangi. og takast svona glimrandi vel :haha: Hlakka samt til þegar þetta verður búið og ég get farið með handboltanum að keppa... hef ekkert fengið að keppa í vetur... svo brjálað að gera í leikhúsinu, en það er líka skemmtilegt sko... Það er einmitt hálfgert partý núna hjá leikurum og fleirum en þar sem ég varð að horfa á Pocahontas og nýjasta Gossip Girl þáttin þá nennti ég ekki út... Sérstaklega ekki í svona frosti... jeminn, það ætti að banna svona kulda... :$

en nú er þetta orðið bara hevý fínt hjá mér... það er sko bannað að lesa bloggið án þess að kommenta, þetta á líka við um þig Unnar Þór og líka þig Halldór Fannar.. ;)


Takk fyrir mig, Þórveig




» 7 hafa sagt sína skoðun

25.10.2008 18:31:35 / Þórveig

Rosalega er "Family Guy" leiðinlegt!!

Jæja.. Þá er drottningin á Túngötu 2 orðin tvítug gella.. ;) Ekki amalegt það... fór í ríkið á þriðjudaginn bara svona mér til gamans.. var eins og fiskur á þurru landi.. afgreiðslukonan hló bara að mér en þegar ég útskýrði fyrir henni að ég væri nú bara nýorðin tvítug þá skildi hún þetta..:haha:

hélt ekkert partý.. nennti því ekki.. sérstaklega ekki að þurfa að þrífa... hrikalega leiðinlegt8| en fékk sam nokkrar gjafir.. ferðatösku frá familíunni.. mamma tók það samt fram að ég þyrfti ekkert að flytja út..  en ég var að sjálfsögðu látin smakka hafragraut sem er það versta sem til er:$ Síðan á mánudaginn í leikskólanum var haldin veisla á Fossi, ég fékk Hello Kitty kórónu og við fengum ískex og djús og krakkarnir sungu. Þeim fannst öllum ég hafa stækkað og töluðu mikið um það:p Þau eru svo yndisleg krakkarnir á minni deild. Ég get ekki hugsað mér lífið án þess að hafa kynnst þeim. Þau eru öll algjörar perlur. Auðvitað koma slæmir dagar þar sem ég er bitin, sem hefur gerst allavega 3... en ég meina það fylgir bara. Var bitin í magann um daginn.. varð rauð og fann mikið til :o en ég jafna mig... :haha:

Nú eru leikæfingar að hefjast aftur að fullu... þetta fer alveg að verða klárt.. varð mjög fegin að fá svona hlé á æfingum því ég var komin með uppí kok af þessu. En nú er allt að verða klárt svo þetta er orðið gaman aftur:d

Handboltaæfingar eru líka byrjaðar á fullu og er Alli Jói þjálfarinn okkar. Hann er yngri en meira en helmingur af okkur stelpunum... en það er mjög gaman ef bara við fengum einhvern tíma að keppa við hin liðin í 2. deild... óþolandi stjórnendur í HSÍ sem leyfa druslum eins og FH- og Haukastelpum að fresta bara leikjunum án þess að þurfa að borga neina sekt. Síðan raða HSÍ gaurarnir niður nýrri leikjaröðun og talar ekki einu sinni við okkur og athuga ekki einu sinni hvort höllin er laus... þoli ekki svona vinnubrögð... :evil:

en nóg af væli... er einstæð tveggja barna móðir um helgina... Foreldrarnir eru endalaust á djamminu.. þetta er ekki manni bjóðandi sko... sérstaklega ekki þegar börnin eru unglingar á gelgjunni... nei djók... þetta er fínt ;)

en nenni ekki að blogga meira.. heyrumst;)

Þórveig tvítuga :lol:


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.10.2008 19:15:30 / aldey

Afmælisbarn

Jæja núna fer loksins að koma að því, drottningin á Túngötu 2 verður tvítug á morgun :) jeij allir að muna eftir því annars gætu komið tár hjá henni ;)

Við að Nökkvavogi 32 erum annars bara þokkalega hress, tökum rölt niður í bæ í dag og það var voða kósý. Voða voða gott veður en samt frekar kalt, byrjuðum einmitt á Bæjarins bestu og það var nú bara helv. gott :)
Núna svo kl. 20:00 er það Reykjavík-Rotterdam í Laugarásbíói, er frekar spennt fyrir henni 8) Svo á bara að taka því rólega í kvöld, drykkjupása á okkar heimili :)

Var að enda við elda dýrindis pylsupasta, maður er allur að koma til í eldamennskunni :)

Á mánudaginn byrjar svo bara skólinn hjá mér aftur á fullu, þetta "frí" var nú bara frekar gott, alltaf gott að vera hjá ma og pa :haha:

En ætla að fara að horfa á fréttirnar, er orðin svo fullorðins 8)

Aldey Trausta.


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.10.2008 19:41:45 / Þórveig

bloggandinn kom loksins yfir mig ;)

INNBÆTT:
vil benda fólki á síðuna Friðum Skjálfandafljór  Þar er margt fróðlegt að sjá...
Ef að fólk vill skrá sig þá er bara að ýta hér
    ________________________________________________________________

jæja..

margt og mikið að segja frá.. Mikilvægustu fréttirnar eru samt þær að ég verð 20 ára eftir aðeins nokkra daga... Sunnudaginn 19. október verð ég loksins tvítug ;) ekkert nema gott mál með það ;)

núna tel ég upp það helsta sem hefur hent mig ;)

* fór á gay-pride.. algjör snilld... þvílík litagleði ;)

* fór á fyrsta djammið mitt í Reykjavík og lenti nánast í slagsmálum.. ekki mér að kenna!!

* byrjaði að vinna á leikskólanum..

* skipti á minni fyrstu kúkableyju.. kúgaðist alltof oft :cry:

* byrjaði að æfa handbolta...

* fór aftur suður og fór aftur á djammið og verslaði helling. Lenti ekki nánast í slagsmálum í þetta sinn.

held þetta sé allt í grófum dráttum... ;)

fyrsti leikurinn okkar stelpnanna er á laugardaginn 11. október.. hér heima við FH.. helgina eftir það er líka heimaleikur við Hauka... við erum svo ekki tilbúnar.. sérstaklega ekki hvað varðar þolið... enda bað Alli Jói okkur á síðustu æfingu að fara út að hlaupa um helgina eða að synda... Ég og Stína fórum að sjálfsögðu út að hlaupa í gær og í dag ;) svo rosalega samviskusamarog duglegar ;)

var að vinna á Sölku í gær...í fyrsta sinn í langan tíma... verð að viðurkenna að ég saknaði þess að hlaupa upp og niður þessa helv.. stiga ;) nennti síðan engan veginn á djammið í gær.. eins og flest allar helgar... er nefnilega búin að ná mér í fullt af þáttum og myndum á mjög löglegan hátt og hef bara ekki tíma í djammið.. :haha: svo bara drekk ég ekki bjór, þoli ekki allt gosið í breezerum og smirnoff og þoli ekki að finna áfengisbragð þannig að það er mjög takmarkað hvað ég get drukkið :o

Planið mitt fyrir framtíðina er að fara að ráðast á eftir... er að fara á fund til Jónu Dagmar núna og þá ákveðum við hvað við ætlum að gera.. hvort Afríka verði fyrir valinu og hvar þá í Afríku og hvort við viljum hafa einhverja aðra með okkur eða bara fara 2.. ;) ég verð að segja að ég get ekki beðið eftir Afríku.. hef farið þangað einu sinni og það var mjög gaman og ég veit að það er fullt af pöddum og snákum og allskonar viðbjóði en ég verð þá bara sterkari fyrir vikið ef ég verð ekki étin af ljóni.. :P

fór í heimsókn til guðsonar míns í dag... færði honum afmælisgjöfina... hann er nú meira krúttið.. ég má loksins fara að fara með hann í sund.. ;)

en ætla að fara að drífa mig til Jónu... :) gjöriði svo vel ;)






dúllur ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.10.2008 20:53:40 / Þórveig

ohh

;">ég nenni ekki að blogga 8|

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.08.2008 19:57:32 / aldey

Borgarbarnið

Komiði heil og sæl, núna er komin tími til að vakna af þessum bloggdvala sem að ég er búin að liggja í í frekar langan tíma :)

Núna er ég flutt í borgina og borg bleytunnar er svo sannarlega réttlætanleg nafngift..þetta er náttúrulega ekki eðlilegt hvað það er búið að rigna mikið hérna úffúffúff svaðalegt og eigum við eitthvað að ræða umferðina!! Ég er allt of mikið landsbyggðar barn :)

Ég og kæró fluttum inn í gær morgun og erum að vinna í því að koma okkur fyrir í kósí risíbúð að Nökkvavogi 32 :) Það bara gengur ágætlega og ég skal sko segja ykkur það að ég er búin að hafa kvöldmat bæði kvöldin..við erum svo heimilisleg :)

núna í þessum skrifuðu orðum er ég að horfa á kastljós og úff þetta lið...ég skal sko segja ykkur það að ég er alls ekki sátt með að þurfa að borga ferð til Peking fyrir mennta- og íþróttamálaráðherra og maka hennar. Pufff whata djöfulsins rugl Ólafur og Dorrit voru þarna og það er nú bara alveg nóg að mínu mati! Þoli ekki þetta pakk í ríkisstjórninni.

en nóg af tuði um það við erum annars bara hress og ég byrja í skólanum á mánudaginn hlakka voða til finnst ég e-ð svo fullorðin að vera að fara í háskóla.

Þetta er fínt í dag..

Aldey Trausta.


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.08.2008 02:15:52 / Þórveig

Sumt fólk!!

ég er alveg komin með nóg af fólki.. allavega sumu! Þegar maður vinnur sem þjónn fær maður alls konar týpur inn! Alveg frá því að vera óþolandi í það að vera frábær ;) ég er meira fyrir að þjóna þessum frábæru týpum frekar en þessum óþolandi, samt eru þessar óþolandi týpur heppnar að fá mig sem þjón en ekki annan ákveðin þjón sem ég vinn með sem myndi bara segja þeim að fara til fjandans!! og trúið mér, sumir eiga það alveg skilið! :haha: en oftast er nú gaman í vinnunni, það er bara þessir dónalegu sem fara svolítið í mig, það fyndna er að það eru oftast íslendingar sem eru með einhverja stæla. Úllarnir eru bara ánægðir með lífið, sáu hvali um daginn eða fóru á typpasafnið, en íslendingarnir eru oftast miklu betri manneskjur en þjónarnir og þjónar eru bara skítur á priki sko.. það finnst þeim allavega!!  eeeen, nóg um fólk;)

ég er bara hress sko... mig langar aftur til Bandaríkjanna en ætli ég geymi það ekki þar til næsta sumar;) þá kem ég kannski með svartan múslima heim.. já eða mexikóskan gyðing?? það er aldrei að vita :) þá yrði pabbi kátur:þ ekki það að hann sé með kynþáttafordóma en hvar annars staðar en í Ameríku finnur maður svona fólk?? ég veit það allavega ekki 8)

annars er ég bara búin að vera að vinna og vinna og vinna. Alltaf gott veður þegar ég vinn, reyndar líka þegar ég er í fríi sem er fínt sko. Er búin að fá vinnu á leikskólanum í haust. Byrja líklegast þar í byrjun september. á eftir að fara að ræða við gunnu dóru um á hvaða deild ég verð;) ég hlakka mjög mikið til.. er búin að gleyma hvernig það er að vinna 8-17 alla daga og svo bara í fríi um helgar.. 8)

heyrðu ég, aldey, unnar, halldór, ólöf, fanný og stína fórum inná akureyri á fimmtudaginn í bíó og út að borða. Við ætluðum á 8 sýningu á Batman en neinei, þá var myndin biluð og engin sýning. Eftir nokkur skammaryrði við starfsfólkið og að sjálfsögðu endurgreiðslu fórum við í keilu og ákváðum að bíða eftir 11 sýningunni. Sem betur fer var myndin komin í lag þá og ég og halldór vorum send inn að kaupa miða því ég náði svo góðum árangri fyrr um kvöldið með kurteisinni minni (og þá er ég að tala af alvöru, ég var kurteisasta manneskjan af okkur öllum) og ég bað bara pent um sama afslátt og ég fékk þegar ég keypti fyrri miðana á netinu og gellan gaf okkur meiri afslátt.. bara eins og við værum öll öryrkjar og gamalmenni að skella okkur á Batman.. ánægð með það :lol: Myndin var líka svo góð að það var vel þess virði að bíða eftir henni.. hún var algjör snilld. besta mynd sumarsins klárlega og besta batman myndin ever! Heath Ledger heitinn er frábær í þessari mynd, hann er svo snarklikkaður sem jókerinn að maður varð hræddur! Hann á óskarinn algjörlega skilinn fyrir frammistöðu sína. Oo hvað ég vildi að hann væri enn á lífi :cry: hann var nottla frábær leikari og ekki skemmdi útitið fyrir...

http://i5.photobucket.com/albums/y184/Honu4/HeathLedger.jpg


að öðru.. ég er að fara í 12 daga frí núna á föstudaginn og þá ætlar familían til Reykjavíkur öll saman. Foreldrarnir ætla á Eric Clapton á föstudaginn og síðan bara keyra um svæðið og hitta ættingja og vini... mig hlakkar kannski of mikið til.. ég bara elska fjölskyldu ferðalög og að keyra í bíl svona langa ferð.. mér finnst það gaman 8|

en nú ætla ég að fara að sofa.. góða nótt;)

Þórveig

http://blog.oregonlive.com/houseoffame/2008/03/Heath%20Ledger.JPG


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.07.2008 16:17:12 / Þórveig

last night in town...

ohh.. síðasti dagurinn hér..! Mig langar heim en samt langar mig að vera hér lengur.. eða mig langar heim í kannski einn mánuð og koma svo aftur... það er svo gaman hér..!! samt sakna ég allra heima og meira að segja vinnunnar.. get ekki beðið eftir að fara að vinna aftur...

nóg af væli... við fórum öll saman út að borða á föstudaginn sem var síðasti dagurinn minn í Beloit. Fórum að sjálfsögðu á LaCasa Grande sem er besti mexikóski veitingastaður í heiminum.. ó mæ god... það er ekkert eðlilega góður matur þarna... en já, eftir matinn fórum við til Chris and Bills, þeir voru með kveðjupartý fyrir mig. Það var ekkert gaman því ég var svo sorgmædd.. en ég fékk nokkur loforð um að koma til Íslands á næsta ári þannig að við bíðum bara og sjáum til... eins gott að þeir komi.. annars verð ég brjál!

Fyrr um daginn fór ég til Brittany og við ákváðum að fara út að hlaupa!! Ekki góð hugmynd, ég hef ekki hreyft mig síðan í mars takk fyrir kærlega.. Britt spurði hvort ég vildi lengri eða styttri leiðina, ég valdi að sjálfsögðu styttri en haldiði ekki að styttri hafi verið 3 MÍLUR!!! ég held ég hafi labbað 2 og hlaupið eina... þetta var ógeðslegt! svo vaknaði ég á laugardeginum með verstu strengi sem ég hef fengið.. mér var illt í ristinni!! ég vissi ekki að það væri hægt.!! næst þegar ég kem verð ég vonandi í betra formi þar sem ég keypti hlaupaskó.. ;) sjáum til hvernig það fer.. :D

jæja, ætla í sturtu því ég þarf að fara í vinnuna til Söru og segja bless og tala við einn vinnufélaga hennar sem þykist tala íslensku... :P

enda þetta að sjálfsögðu á myndum;)

best friends..


ég og britt


og aftur =)


Eric og Lyz


Ty and Ashley

blessbless;) sjáumst á morgun!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.07.2008 20:20:22 / Þórveig

bara fyrir þig Ada... ;-)

þetta var svo busy helgi að ég hafði engan tíma til að blogga.. ;) Sorry Ada;)

Núna er ég að éta pitsu og horfa á sjónvarpið.. það er heitara en heitt úti og inni því ég kann ekki að kveikja á loftkælingunni...

á fimmtudaginn, daginn fyrir þjóðhátíðardaginn, fóru ég, Lyz, Cindy og Barb (mamma lyz og emily sem ég bý hjá) til Milwaukee því þau skjóta upp flugeldum daginn fyrir 4th of July.. við gistum hjá systur Barb sem er btw mjög rík og býr í súper stóru húsi í miðbæ Milwaukee... hún var með partý fyrir vini og fjölskyldu.. Það var mjög gaman.. frekar ógnvekjandi samt að daginn eftir, þegar við keyrðum heim voru 4 drepnir í miðbænum.. fjögur random fólk... voru bara á röltinu og voru skotin og fleiri særðust og löggan jefur ekki hugmynd hver gerði þetta... en nóg um morð hér..

á föstudaginn var þjóðhátíðardagur.. við héldum sundlaugarpartý og grilluðum og spiluðum blak.. ;) svo um kvöldið fórum við í partý og skutum upp helling af flugeldum..

laugardagurinn fór í það að liggja úti og synda... fórum svo í toga partý um kvöldið.. toga eru "kjólarnir" sem grískir guðir klæðast, þessir sem eru á einni öxl og sýna aðra geirvörtuna;) hérna er dæmi:



voða fínir kjólar;) þetta partý var alveg snilld.. vorum bara 10 en guð minn góður.. ég get ekki skrifað hvað gerðist.. þetta var algjör snilld;) frekar vandræðalegt partý en mjög gaman;)

á sunnudaginn fór ég í útskriftarpartý til vinkonu minnar og svo í barnagleði (baby shower) til Katelyn Pyfer.. hún er 18 ára gömul að deita 24 ára gamlan strák sem keppir í kappakstri.. pabbi hans er viðbjóðslega ríkur, þau eiga flugvél og hrikalega stórt hús.. eiginlega höll bara.. húsið er ótrúlega flott og kostaði litlar 3 millur, bandaríkjadala sem eru 230 milljónir og 580 þúsund íslenskar krónur... hvað er það milli vina?? hér er húsið...



og hér er bílskúrinn fyrir einkaflugvélina þeirra...



og hér er katelyn með okkur..



já þetta er alvöru ísbjörn;)
við vorum þarna frá 3 til 9 um kvöldið því við fórum í sundlaugina og spiluðum nokkra blak leiki.. að sjálfsögðu vann mitt lið tvisvar.. ég vissi ekki að ég væri góð í blaki eða þá að blak væri skemmtileg íþrótt... ;) en já svo fórum við heim og ég fór með Christu og Lorah í partý til Justins... svaf síðan í 10 tíma í nótt því  ég var nánast dauð úr þreytu..

á morgun ætlum við aftur á "ströndina" eða þá í vatnsleikjagarð eða þá halda annað sundlaugarpartý;) síðan fer ég á augardaginn til LaCrosse sem er annar bær í Wisconsin.. fer með barb og andy (pabbi Lyz and Emily).. síðan á sunnudaginn kemur Sara að sækja mig og ég fer aftur til Minneapolis.. síðan flug heim á miðvikudaginn 16. júlí og Húsavík daginn eftir;)

er farin að hlakka til að koma heim;) langar samt að vera hérna aðeins lengur.. og ótrúlegt en satt er ég farin að sakna vinnunnar.. ;)

jæja, ætla að enda þetta á nokkrum myndum;)











lorah og ég




christa og ég



ókí bæ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.06.2008 18:48:52 / Þórveig

picture time...


Sam, Cindy og ég;)


Cindy, ég og Brittany



Lyz og ég



ég og matt



Devin og ég


Adrian og ég


Eric og ég


Terrell og ég


ég og Bill


Bill, Emily, Cindy og Terrell


cindy, ég og Terrell


ég og long


Kelly (systir Cindy), Lyz og ég


Dustin, Derek og Chris


ég og Ty

Bannað að gera grín að mér á myndunum!!












» 5 hafa sagt sína skoðun

23.06.2008 23:30:33 / Þórveig

what up thor?

Margt búið að gerast síðan síðast..

Ég skrapp til Cincinnati í Ohio fylki.. það er 6 ½ tíma akstur frá Beloit. Fór með Rachel og mömmu hennar. Fórum á miðvikudaginn og komum til baka á laugardaginn.. gistum á hóteli algjörlega í miðbænum.. voða næs:haha: Fórum á þræla safn, þar er sagt frá sögu þræla í Bandaríkjunum og öllum þeim sem hjálpuðu eða gerðu hluti verri fyrir svertingja.. Mjög áhugavert verð ég að segja.. Fórum í dýragarðinn á föstudaginn, það var frír föstudagur (kostaði ekkert inn) og ég get svarið það að það var hver einasta svarta fjölskylda í Cincinnati stödd þarna og hjólhýsapakkið með sýna fjölskyldu.... það var nánast skemmtilegra að horfa á allt fólkið heldur en dýrin.. krakkar á mínum aldri með 5 börn hver, frænkur og frændur... voða gaman;)

Þegar ég kom heim þá að sjálfsögðu fórum við Lyz í sundlaugina þeirra.. já var ég búin að nefna að ég bý núna hjá tvíbbunum Lyz og Emily Thompson og þær eru með sundlaug í garðinum sínum?? Allavega, voða fínt að vera hjá þeim.. þegar við Emily vöknum þá skellum við okkur í sund og að vörka tanið.. ;) næs eða?? Lyz er nebbla í vinnunni til 6.. nema á morgun, þá eru allar stelpurnar í fríi og við ætlum til Pearl Lake sem er í 10 mínútna fjarlægð.. þar er stórt vatn og manngerð strönd og leiktæki og fínerí.. :D voða fjör:P

Ég er orðin þokkalega tönuð, sem betur fer breyttist bruninn í brúnku þannig að loksins er ég tönuð á bringunni, það hefur líklegast gerst einu sinni áður, skil ekki af hverju ég fæ aldrei lit þarna!! En já, ég er semsagt orðin þó nokkuð brún á hörund;)

The Dells voru snilld, vorum allan daginn í Noah’s Ark í leiktækjum og að sjálfsögðu í Wave-pool, get engan veginn munað íslenska nafnið á því.. um kvöldið fórum við út að borða og svo fóru ég, Long, Lyz og Eric á bæjarrölt og í Go-Kart... hinir voru eftir á hótelinu að drekka og reykja að sjálfsögðu.. fórum svo þangað og fórum í drykkjuleik.. Circle of Death.. hrikalega skemmtilegur leikur.. og flókinn!! Ég tapaði ansi oft!! Fórum síðan á sunnudaginn í morgunverð (kl. 12:00) og brunuðum til Beloit..

Er líka búin að fara í kveðjupartý til Matthias. Hann fór til Ungverjalands fyrir viku síðan, hann er þaðan, og á sunnudaginn fyrir viku hélt hann kveðjupartý.. Það var bonfire og fullt af fólki sem ég þekkti ekki. Það var hundleiðinlegt, stoppaði bara í klukkara.. það sem pirrar mig mest er að fólk skilur ekki að maður vill ekki reykja!! Ég held í alvöru talað að mér hafi verið boðið marijúana 12 sinnum þetta eina kvöld!! Ég er að verða brjáluð á þessu, þetta er eitt af því sem ég mun ekki sakna þegar ég kem heim!!

Hvað fleira hef ég gert?? Fer alltof oft út að borða, er búin að versla pínu, svoltið mikið kannski :!: held það sé voða lítið fleira sem ég er búin að gera... annars bæti ég því bara inn... ;)

Og nú vil ég sko fá komment;)


ég í cincinnati og kentucky fylki hinum megin við brúna..


nellý vinkona mín..


storkurinn sem kemur með börnin í heiminn


vinir mínir, þau komu alveg upp við gluggann nákvæmlega þar sem ég stóð.. apar elska mig;)


múfasa voða þreyttur eitthvað..



Cindy, Emily and Brittany...

Britt bað að heilsa þér Halldór og Long þér Aldey;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.06.2008 02:39:47 / Þórveig

The Dells...

nýkomin heim frá Wisconsin Dells... það var hrikalega gaman;) ég reyndar brann viðbjóðslega.. á bringunni, handleggjunum, lærunum og einnig handarbakinu sem ég skil ekki hvernig mér tókst... já ekki má gleyma andlitinu...;) haha, ætla að setja inn nokkrar myndir... nenni ekki að blogga, mér er svo illt....

bob marley veitingastaðurinn sem við borðuðum á...


Cindy og ég svona fallega brennd í framan..


yuck..


sjáiði þetta fallega munstur á handleggnum á mér?


og hinum..


þarna er bringan mín fallega rauð...


og aftur...


Þetta er svoooooo vont...!!! vona að ég fái lit því annars er allur þessi sársauki til einskis... vona að þið séuð ekki of viðkvæm fyrir þessar myndir... ;)



» 4 hafa sagt sína skoðun

09.06.2008 20:30:08 / Þórveig

I kissed a girl and I liked it..

gott lag.. hér kemur langt blogg:

  • Kom til Beloit á miðvikudaginn. Lestinni seinkaði um 4 tíma svo ég mátti gjöra svo vel og bíða á lestarstöðinni... Cindy og Emily sóttu mig og við fórum beint heim til Em að hitta Lyz og Terell.
  • Fór síðan til Rachel og gisti þar.
  • Fimmtudaginn: Cindy, Em og Terell komu og sóttu mig. Borðuðum á  Culvers, fórum heim til Lyz og Em. Brittany, Ty, Ashley og Eric komu öll og við spiluðum “spoons”, geggjaður leikur. Minnið mig á að kenna ykkur hann þegar ég kem heim. Fórum síðan ég, lyz, britt og Cindy út að borða á LaCasa Grande... besti veitingastaður í heiminum, mexíkóskur að sjálfsögðu=)
  • Föstudaginn, fór á Starbucks með Rachel og Matt. Fórum síðan í skólann og ég skoðaði, oh hvað ég saknaði hans!! Fórum síðan bara heim og JoJo kom í heimsókn um kvöldið.
  • Laugardagurinn fór í það að spila keilur með Rachel, Steve (pabba Rachel) og JJ... fórum síðan heim til Rachel og Steve grillaði kjúlla og steik handa okkur og JJ borðaði með okkur. Fór síðan í partý með Cindy til Bill og Devin. Þar var fullt af fólki, partýið einkenndist eiginleg af fólki úr enskutíma með mér. Það var nánast allur ensku bekkurinn minn samankominn þarna.. gaman að hitta þau öll...
  • Á sunnudaginn fórum við Rachel til Plattville þar sem Aaron er að vinna. Eyddum deginum með honum þar og fórum út að borða um kvöldið;)
  • Mánudagurinn einkenndist ef leti, gerði ekki neitt nema horfa á sjónvarpið, fór reyndar í vandræðalegasta kvöldmat sem ég hef farið í. Doug bauð mér og Rachel út að borða og að sjálfsögðu varð LaCasa fyrir valinu. Hver haldiði að hafi verið úti að borða á sama tíma með vinum sínum...?? Engin önnur en Doreen.. hversu vandræðalegt!! Þið sem ekki vitið eru Doug og Doreen fyrrverandi “host” fjölskyldan mín, þau skildu fyrir tæplega tveimur árum og Doreen er komin með nýjann. Að sjálfsögðu fór ég og heilsaði henni á meðan Doug og Rachel fóru og fundu borð. Þjóninn ætlaði að setja okkur á borð rétt fyrir ofan Doreen og vini hennar en þá hvíslaði Doug: viltu færa okkur sem lengst frá þessu borði?? Þannig að við vorum látin sitja úti í horni. Þau algjörlega hundsuðu hvort annað.. frkear vandró.. en þá er ekki allt komið. Þegar við vorum að borða kom þessi strákur sem heitir Jose (hósei) sem var víst sophomore þegar ég var skiptinemi. Hann þekkti mig en ég ekki hann svo hann stóð þarna eins og asni og myndaði orðið “awkward” með vörunum meðan Doug var eitthvað að tala við hann...
  • Þriðjudeginum eyddi ég á snyrtistofu með Emily að bíða eftir að Cindy yrði búin að láta græja á sér neglurnar.. fórum svo út að borða á Culvers, síðan heim til Cindy þar sem Eric náði í okkur, við fórum og leigðum mynd og fórum til Emily að spila og ræða um ferðina okkar til Wisconsin Dells. Það er bær sem samanstendur af vatnsleikjagörðum og skemmtigörðum og skemmtilegheitum fyrir ferðamenn eins og minigolfi og fleiru. Ætlum að fara þangað 14. júní og gista í svítu og fara í Noah´s Ark sem er vatnsleikjagarður. Gerðum þetta líka síðast þegar ég var hérna, ógeðslega gaman þarna.
  • Man ekki hvað ég gerði á miðvikudaginn.. á fimmtudaginn fór ég að versla með Lyz, Emily, Brittany og Courtney.. Fórum í mollið í Rockford.. ég var bara róleg og keypti eitt gallapils og stuttbuxur til að sofa í..
  • Föstudaginn fórum við Rachel í bíó.. sáum Chronicles of Narnia: Prince Caspian.. illa góð mynd og ekki skemmir fyrir að prince Caspian er hrikalega fallegur og líka king Peter...  man ekki hvað ég gerði um kvöldið..
  • Á laugardaginn fór ég í götuveislu með Rachel og pabba hennar.. þar var djass band að spila og margir að dansa.. ógeðslega heitt og rakt úti.. eins og í gufubaði... samt fínt sko.. góður matur;) um kvöldið fór ég á Starbucks með Christa, Aaron og Hilary... fór síðan til Matthias og þar voru Arpad, JJ, JoJo og Teddy að reykja marijuana og vindla... voða fjör þar.. við Christa fórum fljótlega.. erum ekki mikið í marijuana reykingunum... er ekki frá því að flest allir stráka vinir mínir reykja marijuana.. engin stelpnanna samt.. erum svo skynsamar;) Fórum til Aarons og vorum þar heillengi, fór síðan til Eric´s að horfa á sjónvarpið... er strax komin í eitthvað helvítis dramavesen... ekki mér að kenna:!::!: fór síðan bara heim að sofa hjá Cindy... já ég er flutt til hennar af því Rachel og fjölskylda fóru til Montreal í fjölskylduferðalag..;)
  • Sunnudagurinn, ég Cindy, Kellie (systir hennar) og Terell fórum á Culvers að éta og fórum svo í bíó á You don´t mess with the Zohan... fyndin mynd, hef samt séð þær betri.. fórum síðan á vidjóleiguna og leigðum okkur Semi Pro með Will Ferell.. ég þoli ekki Will Ferell en myndin var mjög fyndin og vandræðaleg...
  • Mánudagur í dag.. er í augnablikinu að horfa á Snakes on a plane með Emily og Jackie (önnur systir Cindy)... Erum að bíða eftir Cindy að vera búin í sturtu og þá ætlum við að fara að fá okkur að borða..;)

>

Alltof langt.. þið sem nenntuð að lesa þetta þakka ykkur kærlega fyrir... kommenta takk:D

>

Þórveig




» 7 hafa sagt sína skoðun

31.05.2008 20:17:12 / Þórveig

hallo

simanumerid mitt her i Beloit er : 001-608-322-4805

Hringid ad vild;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 02:43:30 / Þórveig

Útskrift og Minneapolis;)

jæja kids.. sit hérna í herberginu mínu hjá Söru vinkonu mömmu.. mjög gott veður, heitt og ljúffengt;) Ég hélt í alvöru að ég myndi deyja í dag úr hita, hitinn á samt eftir að versna þannig að ég skil ekki hvað ég er að kvarta núna..8| Það var 29 stiga hiti í dag og pínu vindur sem var mjög gott;) Nú er klukkan hálf 10 og ég hlusta á Alone með Celine Dion vinkonu minni.. Það minnir mig bara á Fanný enda nauðgaði hún þessu lagi síðustu dagana áður en ég fór;) Er ekkert farin að sakna ykkar..:P Sorry kids, það er bara búið að vera of gaman..

Ég semsagt útskrifaðist á föstudaginn, er búin að setja myndir á myspace og facebook.. allir að skoða og kommenta;) Það var mjög gaman hjá mér þá, fékk fullt af fallegu fólki í veislu og borðaði svona vel yfir mig.. Held ég hafi farið sirka 8 ferðir, ekki það að ég hafi verið að telja:þ Fékk líka þessar fínu gjafir, ánægð með þær allar;) Takk kærlega fyrir mig8) Var vakandi til 5:00 á fostudagsnóttina því Hildur neitaði að fara, nei djók:) vaknaði kl. 9:00 til að græja mig.. Mamma keyrði mig til Akureyrar og ég skellti mér í flugið.. Sat hjá þessum indæla manni, vélin hristist slatta og mér finnst það gaman en ég verð alltaf líka hrædd... fékk að grípa í sessunautinn nokkrum sinnum;) Brunaði til Kefavíkur og gerði voðalítið á flugvellinum. Flugið var 6 klst og 15 mín. Ekki amalegt það:!: Sat að sjálfsögðu upp við glugga hjá mjög skemmtilegu pari. Við konan vorum sammála að okkur líkar oftast við börn en ekki í flugi. Djís hvað þau eru óþolandi. Ég veit að eyrun meiða þau og allt það, en það voru nóg af börnum þarna og þegar eitt byrjaði að grenja tóku öll hin undir! Þarna ákvað ég að ef ég eignast börn þá fara þau ekki til útlanda fyrr en þau eru orðin allavega 2 ára..
Sara tók á móti mér í Minneapolis, keyrðum og fengum okkur að éta.. fórum heim og ég náði að halda mér vakandi til 10pm (3:00 á íslenskum tíma).. Vaknaði við það að nágrannarnir voru að rífast: Give me the fucking phone! Are you fucking kiddin me Tim? Get the fuck off my property. Go away, get off my property.. og meiri svona herlegheit8| Voða næs8) Fórum til foreldra Söru og þau eru æði, sérstaklega pabbi hennar. Þau eiga 3 hús. Einn sveitabæ, eitt í Florida sem þau nota á sumrin og eitt í Rochester, bær sem er rétt hjá sveitabænum þeirra og um 1 og 1/2 tíma frá Minneapolis.. Við vorum á sveitabænum og þetta var sko enginn venjulegur sveitabær. Einu dýrin voru 2 kettir, það voru svona 4 hús þarna og pabbinn á sirka 12 bíla! Hann á mjög gamla bíla og tók mig í bíltúr á einum hrikalega flottum. Er með myndir.. Þetta var alveg snilldar staður. Hann var búinn að græja eina hlöðuna svo hún var bara eins og íbúð, það voru sófar, sími, tölva, eldhús með minibar og ísskáp og eitthvað fleira, Við sátum þar allan daginn og fólkið drakk en ég var bara edrú. Frændi Söru kom, hann er 21. árs og heitir Marcus. Vinur hans, sem er líka 21. árs, var þarna líka, Spencer! Þeir eur alveg snilld. Sérstaklega drukknir, eða eiginlega bara alltaf. Mjög opinskáir og segja bara allt sem þeim dettur í hug. Við ætluðum í keilu, ég, Sara&George og strákarnir en það var lokað svo við fórum á bar og sátum úti. Það  er einmitt 21.árs aldurstakmark en enginn bað mig um skilríki og Sara keypti áfengi handa mér. Eftir 2 bjóra fórum við aftur á sveitabæinn og sátum í "hlöðunni" fram eftir nóttu. Í dag keyrðum við svo til Rochester því þar býr Marcus hjá ömmu sinni og afa (foreldrar Söru) og ég fór með Marcus og Spencer í mollið og að rúnta um bæinn. Fórum síðan bara heim um 5 leytið, þá meina ég ég, Sara og George til Minneapolis:d
Á morgun ætlum við Sara í stærsta mollið í Bandaríkjunum, Mall of America. Það er víst hrikalega stórt:o Á miðvikudaginn tek ég lestina til Milwaukee og þar sækir mig einhver og ég fer til Beloit. Sara vill endilega að ég komi og verði hjá henni í nokkra daga áður en ég fer heim og ég held ég geri það bara:haha:

Djís hvað þetta er orðið langt.. enda þetta á nokkrum myndum;)






Halldór gleymdi sér í gleðinni og gleymdi að vera alvarlegur;)




Dúllur;)


Bílskúrarnir


"Hlaðan"





Fékk ekki að keyra enda virtist það ómögulegt!


hann er fallegur, mjög gaman að keyra um í honum..

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 22
photos..:D
fun-fun-fun=)